Karen Janine Sturlaugsson

Hljómsveitarstjóri frá árinu 2018

Karen Janine Sturlaugsson er fædd í Bandaríkjunum en er af íslensku bergi brotin.  Hún byrjaði að læra á píanó sex ára en bætti  fljótlega við námi á trompet.  Hún lauk háskólaprófi í tónlist á trompet, í hljómsveitarstjórn og stærðfræði frá bandarískum háskóla.  Hún lærði hljómsveitarstjórn hjá Herbert Blomsted og fleirum en ólst upp í lúðrasveitum en faðir hennar var lúðrasveitastjórnandi.  Hún byrjaði að stjórna sinni fyrstu lúðrasveit 16 ára.  Hún hefur aðalega verið að stjórna skólalúðrasveitum í gengum árum – bæði í USA og á Íslandi.  Hún hefur stjórnað bæði elstu Lúðrasveit TR, bæjarlúðrasveit Reykjanesbæjar og Léttsveit TR. Í dag er hún að stjórna Bjöllukór TR, Stórsveit Suðurnesja og Lúðrasveit verkalýðsins.  Hljómsveitir hennar hafa ferðast mikið, bæði á Íslandi og til útlanda.  Karen hefur kennt við Tónlistarskólann í Keflavík frá 1988 og var skólastjóri Tónlistarskólans í Keflavík 1997-1999.  Hún hefur verið aðstoðaskólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar síðan 1999.  Karen hlaut Menningarverðlaun Reykjanesbæjar, Súluverðlaunin árið 2001 og er nú listamaður Reykjanesbæjar árin 2022-2026. Karen hlaut Fálkaorðuna fyrir starf sitt í þágu íslensk tónlistarlífs árið 2022, sem var afhent af forseta Íslands í júní það ár.