Snorri Heimisson: Afmæliskveðjur
Til hamingju með daginn flotta lúðrasveit!
Mánudagur, 08. Mars 2010
Einar Jónsson: Glæsilegur Rutter
Þakka KÆRLEGA fyrir frábæra tónleika, eina þá bestu sem ég hef farið á lengi. Gneistflugið af brassinu, sveigjanleikinn í trénu, krafturinn í slagverkinu og kórnum verða eftirminnileg. Ég sat og skalf og gat vart varist tárum. Frábærlega vel heppnað. Kórinn æðislegur, hljómsveitin æðisleg, stjórnandi og einsöngvari æðisleg. Ég er stoltur af ykkur. Meira svona!! Sem allra fyrst!! Til hamingju. Kveðja frá útsetjaranum
Sunnudagur, 07. Febrúar 2010
Hildur : Glaðir borgarbúar
Kæra lúðrasveit.
Í dag gekk ég með ykkur niður Skólavörðustiginn. Það var gaman að heyra fólkið tala saman: Stórkostlegt, en gaman, hvað er að gerast? Allir brostu út að eyrum og höfðu greinilega gaman af því lífi sem þið báruð með ykkur. Uppi í gluggum allt upp að þriðju hæð voru andlit límd við rúðurnar sem bentu á sveitina og brostu. Á svölum húsa mátti sjá fólk, ég er viss um að allt að 200 manns fylgdust með ykkur í dag og myndir fara heim með mörgum ferðamanninum. Takk fyrir að blása lífi í borgina.
Miðvikudagur, 27. Maí 2009
Guðrún Jarþrúður: Blásum lífi í borgina
frábær skemmtun og óteljandi bros á Skólavörðustíg, til hamingju, blásum lífi í borgina jesssss
Miðvikudagur, 27. Maí 2009
Einar Jónsson: Afmæli
Til hamingju öll sömul með daginn!
Sunnudagur, 08. Mars 2009
Snorri Heimisson: Til hamingju með daginn
Til hamingjum með afmælið í dag!
Sunnudagur, 08. Mars 2009
gestur: Magnaðir tónleikar
Meiriháttar tónleikar í Óperunni í dag. Við skemmtum okkur frábærlega. Takk fyrir okkur
Heiða, Svana og Hilmar
Sunnudagur, 15. Febrúar 2009
Torfi: Flottir tónleikar
Takk kærlega fyrir tónleikana í dag í Óperunni. Engin spurning, þið eruð alveg frábær sveit.
P.s. flott nýja síðan hjá ykkur.
Laugardagur, 14. Febrúar 2009
Snorri Heimisson: Fllott síða
Hæ hó! Mér finnst þetta útlit afar glæsilegt. Ég er mjög sáttur við þetta. Til hamingju!
Þriðjudagur, 10. Febrúar 2009
Úlfar Snær Arnarson
Það er gaman að sjá uppganginn í hljómsveitinni. Einnig gladdi það mitt gamla lúðrahjarta að horfa á upptökuna frá 1991 á síðunni.Áfram LV!Úlli básúna
Föstudagur, 30. Janúar 2009
Ármann Helgi
Þakka ykkur kærlega fyrir tónleikana hér á Akureyri með Naglbítunum, ég kemst ekki yfir það hvað þetta var gaman og bíð óþreyjufullur etir því að fá diskinn. Simfónía hvað!!!
Föstudagur, 30. Janúar 2009
Torfi
Kæru vinir í LV og 200000 Naglbítum.Kærar þakkir fyrir alveg ótrúlega frábæra tónleika á Akureyri á laugardaginn. Það var sko alveg þess virði að keyra norður og hlusta á ykkur. Þvílíkt stuð og fjör. Ég vissi að LV væri góð lúðrasveit, en nú hefur hún sannað að hún er súpergóð. Engin lúðrasveit á landinu kemst með tærnar þar sem þið eruð með hælana, marig metrar þar á milli. Tónlist Naglbítanna er frábær. Hafið kærar þakkir fyrir öll sömul. Nú er bara að fá diskinn, svo hægt sé að halda áfram að skemmta sér.LV rokkar. Ég er stoltur af ykkur.Já Eggert það sáust tár á hvarmi.Kveðja til ykkar allra.Torfi Karl Antonsson, félagi til margra ára í LV.
Föstudagur, 30. Janúar 2009
Hlynur Már Á.
Takk kærlega fyrir frábæra tónleika hérna á akureyri með 200.000 naglbítum. Hlakka til þegar diskurinn kemur svo maður geti hlustað á þessa snilld daglega.
Föstudagur, 30. Janúar 2009
Hófí
Hæhæ!Minni á að í sumarfríinu væri tilvalið að uppfæra félagatalið, og eins að vísa í Facebook síðu sveitarinnar á vefsíðunni :-)Hófí
Föstudagur, 30. Janúar 2009
Elfa
Takk fyrir skemmtilega kröfugöngumarsa á 1. maí og létt lög áður en þið fóruð heim.
Föstudagur, 30. Janúar 2009
Villi naglbítur
Hæ hó... ógeðslega flott í í göngunni í dag. Við Þórdís og litli Illugi stóðum með gæsahúð... massa flott... takk fyrir okkur.
Föstudagur, 30. Janúar 2009
Torfi
Kæru félagar. Glæsileg gangan í dag hjá ykkur eins og við var að búast. Flott að sjá svona glæsilga lúðrasveit í broddi fylkingar göngunnar. ÁFRAM LÚÐRASVEIT VERKALÝÐSINS.
Föstudagur, 30. Janúar 2009
Torfi
Til hamingju með að vera búin að setja nótnasafnið á vefinn. Ég er viss um að engin sveit á landinu státar af jafn miklu nótnasafni og þaðan af síður jafn vel uppsettu og hjá ykkur. Það er löng og ströng vinna að baki þessu og hófst fyrir mörgum árum. Flott framtak.
Föstudagur, 30. Janúar 2009
Torfi karl Antonsson
Kæru félagar. Takk kærlega fyrir hressilega og skemmtilega tónleika 17/11 2007. Gaman að sjá að sveitin dafnar jafnt og þétt. Og ekki sakaði að sjá að nafni mínu er enn haldið á lofti í hornadeildinni. Snorri þú ert á réttri braut með sveitina. Gangi ykkur allt í haginn. Kíki á ykkur fljótlega.
Föstudagur, 30. Janúar 2009
Hófí
Best ég reyni að halda dampi fyrir þá 3 sem þora að tjá sig í gestabókinni

Hvenær verður fyrsta æfing haustsins? Er farin að sakna ykkar alveg heilan helling

Hófí
Föstudagur, 30. Janúar 2009