Lúðrasveit verkalýðsins tekur þátt í hátíðardagskrá á Bessastöðum næstkomandi fimmtudag þegar forseti Eistlands kemur í opinbera heimsókn til Íslands. Leiknir verða þjóðsöngvar Eistlands og Íslands og stefnir Lúðrasveit verkalýðsins að vera landi sínu og þjóð til sóma með lýtalausum flutningi þjóðsöngvanna.
LV í Ólafsvík um helgina
Lúðrasveit verkalýðsins leggur land undir fót um helgina þegar hún bregður sér til Ólafsvíkur. Ætlunin er að taka þátt í hátíðahöldum í tilefni sjómannadagsins þar í bæ og koma öllum bænum í gott skap með glimrandi músík. Að sjálfsögðu mun Lúðrasveit verkalýðsins keppa í róðrarkeppninni í Ólafsvík enda er róðrarlið LV fullt sjálfstraust eftir glæstan sigur á telpnadeild slysavarnarfélagsins í róðrarkeppninni á Neskaupsstað hér um árið auk þess sem að Lúðrasveit verkalýðsins burstaði Lúðrasveit Vestmannaeyja á þeirra heimavelli!
Lúðrasveit verkalýðsins mun því svo sannarlega setja svip sinn á hátíðahöldin í Ólafsvík.
Lúðrasveit verkalýðsins í Eyjum
Stór hluti Lúðrasveitar verkalýðsins var í Vestmannaeyjum um helgina og tók þar þátt í tónleikum Tríkot og Lúðró. Ósvaldur Freyr Guðjónsson stjórnaði sameinaðri lúðrasveit verkalýðsins og lúðrasveit Vestmannaeyja þar sem voru flutt mörg hress lög með mikilli innlifun svo sem Hocus Pocus eftir hollensku sveitina Focus og Think sem Aretha Franklin gerði frægt á sínum tíma. Hér að neðan má sjá myndband af einu af uppklappslögunum
Adobe Flash Player not installed or older than 9.0.115!
Myndir og frekari umfjöllun um tónleikana má sjá á vef Eyjafrétta.
Dagskrá 1. maí í Reykjavík
1. maí í Reykjavík 2010
Dagskrá
Safnast saman á Snorrabraut fyrir neðan Hlemm kl. 13.00. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika nokkur lög. Gangan leggur af stað kl. 13.30. Gengið niður Laugaveg Bankastræti, Austurstræti og inn á Austurvöll. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu. Ræðumenn flytja örræður meðan gangan stendur yfir. Útifundur á Austurvelli hefst kl. 14.10. Ávarp fundarstjóra Rannveig Sigurðardóttir, verslunarmaður í VR Ræða Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar Tónlist Hjaltalín Ræða Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB Tónlist Hjaltalín Ávarp Þorkell Einarsson, formaður Samband íslenskra framhaldsskólanema Kakó í boði og leiktæki fyrir börn. Útifundi líkur kl. 15.00.
Fundarstjóri slítur fundi ,,Internationalen" sunginn. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika undir.
BSRB styrkir Lúðrasveit verkalýðsins
Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB undirritaði í dag samning við Lúðrasveit verkalýðsins þar sem bandalagið styrkir lúðrasveitina um 400 þúsund krónur árlega næstu þrjú árin. Samningurinn gildir til ársloka 2012. Á móti mun Lúðrasveit verkalýðsins leika í 1. maí kaffi BSRB þessi þrjú ár auk þess sem bandalagið getur fengið sveitina til að leika við tvö önnur tilefni árlega án sérstakrar greiðslu.
Snorri Heimisson stjórnandi Lúðrasveitar verkalýðsins, Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB og Eggert Jónasson formaður Lúðrasveitar verkalýðsins við undirritun samningsins. mynd/bsrb
Barnatónleikar í Íslensku óperunni
Skapast hefur hefð fyrir árlegum barnatónleikum Lúðrasveitar verkalýðsins. Barnatónleikarnir hafa alltaf fallið í góðan jarðveg og ekki síst hjá yngri kynslóðinni. Lúðrasveitin leggur sig alla fram við að gera þessa tónleika fræðandi og jafnframt skemmtilega fyrir unga hlustendur sem aldna. Í ár mun lúðrasveitin gera ungum einleikurum sínum hátt undir höfði, en á efnisskránni er m.a. Happy Go Lucky fyrir þverflautu og hljómsveit, Buglers Holiday fyrir þrjá trompeta og hljómsveit, Sandpaper Ballet þar sem sandpappír skipar stóran sess í slagverkssveitinni. Ekki verður þar með sagt skilið við slagverkið, því sveitin mun einnig flytja konsert fyrir trommusett og hljómsveit. Þá mun básúnan fá að njóta sín í Morceau Symphonique, einleiksverki fyrir básúnu og hljómsveit. Einleikararnir hafa allir verið valdir úr lúðrasveitinni og koma flestir frá yngri kynslóðinni. Auk þessara einleiksverka mun sveitin flytja þekkt lag eftir Michael Jackson, lag úr teiknimyndasyrpunni „Simpsons“ og syrpu úr Kardimommubænum svo fátt eitt sé nefnt.
Tónleikarnir verða haldnir laugardaginn 24. apríl og hefjast klukkan 14. Aðgangur er ókeypis á meðan að húsrúm leyfir. Kynnir á tónleikunum verður Felix Bergsson. Stjórnandi Lúðrasveitar verkalýðsins er Snorri Heimisson.
Nokkrir nemendur úr Listaháskóla Íslands litu við á æfingu hjá Lúðrasveitinni í gærkvöldi, 15. febrúar. Þeir eru að læra útsetningar og tónsmíðar undir leiðsögn Tryggva M. Baldvinssonar, fyrrverandi stjórnanda Lúðrasveitar verkalýðsins. Lögin sem nemendurnir útsettu fyrir lúðrasveit voru spiluð í gegn á æfingunni og kom lúðrasveitin með gagnlegar ábendingar varðandi útfærslu og uppsetningu á útsetningunum.
Lúðrasveit verkalýðsins hafði mjög gaman af þessari heimsókn og var skemmtilegt að sjá hversu fjölbreyttar þessar útsetningar voru. Var þetta kærkomin tilbreyting fyrir lúðrasveitina eftir að hafa æft Magnificat eftir John Rutter nú í nokkurn tíma. Nú verður hins vegar lagt allt kapp á að undirbúa barnatónleika sem verða haldnir á vordögum og koma nánari upplýsingar um þá síðar.
Vel heppnuð tónleikahelgi
Magnificat eftir John Rutter var flutt af Lúðrasveit verkalýðsins, kór Fella-og Hólakirkju og Söngsveitinni Fílharmóníu um síðustu helgi. Viðtökur voru vonum framar og var fullt hús á báðum tónleikunum, en verkið var flutt tvisvar, á laugardeginum 6. og sunnudeginum 7. febrúar síðastliðnum.
Einar Jónsson, tónlistarunnandi og básúnuleikari útsetti verkið fyrir lúðrasveit og kór og á hann þakkir skildar fyrir að koma þessu verki einstaklega vel frá sér af mikilli hugsjón og kærleika. Nanna María Cortes hlaut mikið lof fyrir einsöng sinn í verkinu og ekki að ástæðulausu þar sem flutningur hennar var hnökralaus og unaðslegur. Ekki má gleyma sameinuðum kór Fella- og Hólakirkju og Söngsveitarinnar Fílharmóníu sem stóðu sig alveg frábærlega á tónleikunum. Lúðrasveit verkalýðsins vill koma á framfæri þökkum til þessa æðislega fólks sem gerði þessa tónleika ógleymanlega.
Síðast en ekki síst í þessari lofræðu þá verður að koma á framfæri þakklæti til þeirra sem komu og nutu tónleikanna með okkur um helgina. Án ykkar væru engir tónleikar og við vonum svo sannarlega að þið hafið skemmt ykkur eins vel og við!
Framundan hjá Lúðrasveit verkalýðsins eru meðal annars árlegir barnatónleikar okkar á vordögum þar sem lúðrasveitin flytur létt og skemmtileg lög fyrir krakka á öllum aldri en nánari upplýsingar um þá tónleika auk annara viðburða á vegum sveitarinnar berast þegar nær dregur.
Lúðrasveit verkalýðsins æfir nú af kappi fyrir fyrirhugaða tónleika í febrúar. Þar verður flutt verk eftir John Rutter ásamt Söngsveitinni Fílharmóníu og kór Fella- og Hólakirkju. Það verður sannkölluð tónlistarveisla þar sem á annað hundrað manns flytja verkið sem nefnist Magnificat.