Sveitin
Lúðrasveit verkalýðsins er virk blásarasveit á höfuðborgarsvæðinu. Í henni er eingöngu spilað á blásturshljóðfæri, þó að undantekningar hafa verið gerðar við sérstök tækifæri. Starf sveitarinnar er mjög fjölbreytt og skemmtilegt. Tvisvar á ári eða jafnvel oftar eru haldnir tónleikar. Hefð hefur komið upp við að miða efni fyrri tónleikana við börn og hefur það vakið mikla lukku. Utan skipulagðra tónleika þá spilar sveitin við ýmisar opinberar athafnir og hátíðahöld, s.s. 1. maí og 17. júní. Sveitin hefur einnig tekið að sér að spila fyrir einkaaðila eða fyrirtæki og er alltaf tekið vel í það að spila við svoleiðis tilefni.